Sigurður Brynjarsson hefur starfað við akstur frá 1990. Hann hefur víðtæka reynslu af akstri allskyns bíla við ólíkar aðstæður, bæði smærri og stærri fólksbíla og hann hefur enn fremur ekið vörubílum og fólksflutningabifreiðum á flestum vegum landsins, þ.m.t. á hálendi Íslands.
Sigurður hefur látið sig umferðaröryggismál varða með mörgum hætti, m.a. með starfi við veltibílinn og ökuleikni Brautarinnar, bindindisfélags ökumanna. Hann hefur gaman af fornbifreiðum og bifreiðasögu en fylgist líka vel með þróun og nýjungum í bíltækni. Hann var á tímabili í þjónustuliði keppnisbíls í torfærukeppnum og í tengslum við áhuga sinn á bílum og ferðalögum hefur hann breytt nokkrum af sínum eigin jeppum til fjallaferða. Auk þess að læra til ökukennara á hann að baki nám í rennismíði og hluta náms í bifvélavirkjun og vélstjórn. Hjá Sigurði sameinast því reynsla, menntun og skilningur á því hvernig bílar – og ökumenn þeirra – virka í raunverulegum aðstæðum.
Brynjar Magnús Valdimarsson hóf ökukennslu 1974, í upphafi meðfram kennslu í grunnskóla, en eftir nokkurt hlé gerði hann ökukennslu að aðalstarfi árið 2012.
Frá árinu 1976 hefur Brynjar starfað mikið að umferðaröryggismálum. Hann sat rúma tvo áratugi í stjórn Bindindisfélags ökumanna og gegndi þar af starfi formanns í 9 ár. Þar vann hann meðal annars að því að veltibíll var fenginn til landsins, starfaði við fjölda ökuleiknikeppna og sat fyrir hönd félagsins í Umferðarráði. Hann er annar af stofnendum og eigendum Ökuskóla Kópavogs. Hann hefur kennt í Ökuskóla 3 frá stofnun hans árið 2009.
Auk þess að vera virkur í félagsmálum hefur smíðakennarinn Brynjar mikinn áhuga á ýmsum smíðum og eftir hann liggja margir gripir úr tré.
Kennslubifreiðar:
Beinskiptur Nissan Qashqai, 4X4, árgerð 2019
Sjálfskiptur Mazda CX5, 4X4, árgerð 2019
Kennslutungumál: íslenska og enska
Sími: 680 8000
Netfang: kennsla@akandi.is